-viltu koma í sleik?

blog.central.is/hreinirsveinar

23.08.2006 08:42:50 / hreinirsveinar

It all began hand in hand on that sunny day in june

Kæra fólk.

Um þessar mundir eru strákarnir mínir í mikilli sálarkreppu, þeir tóku þá ákvörðun fyrir stuttu að hætta þessari síðu sem hefur gefið þeim svo mikið með annarri en aftur á móti tekið með hinni. Eftir u.þ.b. mánuð í fríi voru nokkrir meðlimir orðnir annsi þreyttir á því að sitja í myrkrinu, því þar áttu þeir ekki heima, þeir vildu ljósið, þeir vildu kastljósið, því þar eiga þeir heima. Næstu daga ætla strákarnir að leggjast undir feld og hugsa málið í gegn. Ýmsar hugmyndir hafa þegar komið uppá yfirborðið og hljóma þær bísna spennandi. En málin eru ekki komin það langt á veg að hægt sé að upplýsa ykkur betur um málið. Eina sem ég get sagt er að þið getið hætt að heimsækja þessa b.c. síðu því það mun ekkert frekara koma inná hana. Segir þó gróusagan að þetta séu ekki síðustu skrif drengjanna á veraldarvefinn, hvort sem það verður undir merkjum hreinnasveina eða annars félags verður hinsvegar að koma í ljós.

Með söknuði kveðja þeir

Fyrir hönd Hreinnasveina

Einar Bárðarson


» 5 hafa sagt sína skoðun

08.07.2006 14:31:12 / hreinirsveinar

Eigum við....

Eigum við að hætta?

Segðu þína skoðun hér fyrir neðan.

» 17 hafa sagt sína skoðun

17.06.2006 15:49:25 / hreinirsveinar

:(

Strákar ég er búinn að vera nánast hvert kvöldið með ykkur meðan að nokkrir menn í þessu félagi hafa ávallt verið að eitthvað annað eins og mjög skemmtileg afsökun hjá Skúla þegar hann segist vera þreyttur, Jonni að hitta kjell,Grímur passandi lítil börn og farandi hringinn í kringum landið í pössunarferð og Boði já hann er nú alveg rosalegur, það vita allir hvað hann gerir. Ég myndi segja að ég hafi nú verið sá sem hafi verið að koma fundum á milli okkar þanig við getum hist og svo er annar maður sem er ekki í þessu félagi hann Ásgrímur Geir sem hringir í mann oft og planar eitthvað fyrir okkur strákana! Það er langt síðan þið hinir 4 gyðingarnir hafið gert það! Þanig þið ættuð að fara að hugsa ykkar gang aðeins. Þetta er eina kvöldið í gær sem ég hef ekki hitt ykkur þegar við höfum ætlað að gera eitthvað og svo meira að segja hitti ég ykkur seinna um kvöldið.

SKAMMIST YKKAR DÓNAR!

  KV. ATLI BJÖRN.


» 5 hafa sagt sína skoðun

17.06.2006 00:10:09 / hreinirsveinar

Atli þú ert rekinn!


Atli Björn
nú mætti segja að þú hafir skotið þig í fótinn! Hvers vegna?

Nú í kvöld var ákveðið að við strákarnir myndum hittast og leika. Það var 80% mæting, og þú Atli Björn þú varst þessi 20% sem vantaði! Hvað varst þú að gera?

Þú ákvaðst að eyða kvöldinu heima hjá Guggu að horfa á sjónvarpið. Þetta veldur okkur, okkur sem héldum að þú værir vinur okkar, ekki einungis vonbrigðum heldur gífurlegri hjartasorg.

Það er því ljóst að það er bara einn Júdas í þessum vinahópi og því miður fyrir þig Atli, þá ert það þú. Í sumar höfum við strákarnir verið að reyna að hittast en alltaf hefur þú verið að gera eitthvað annað, heima hjá guggu, spila á trommur eða drekkandi með öðrum vinum þínum.

Því höfum við ákveðið að reka þig úr þessu bloggfélagi, félagi sem við vinirnir stóðum að og þar sem þú ert greinilega ekki einn af okku lengur þá er þetta niðurstaða okkar vinanna. Vinahópi sem þú tilheyrir því miður ekki lengur.

Við vitum samt Atli að þú ert góður strákur og við vonum að þú eigir eftir að lifa góðu lífi. Og vonum að þú verðir ekki jafn mikill buddy-sjæza við þinn næsta vinahóp.

Atli Björn þú ert drekinn

Skúli Jón Friðgeirsson, Grímur Björn Grímsson, Jónatan Arnar Örlygsson, Boði Logason.


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.06.2006 00:30:17 / hreinirsveinar

Veisluhöld.

Hreinirsveinar hittast í kvöld og skemmta af sér skóna.
Allir mæta plús nokkrir gestir.

Hvar verður þú?

minikort 069.jpg

Ef þú ert stelpa á aldrinum 14-35 ára, hafðu samband.

-HreinirSveinar.


» 3 hafa sagt sína skoðun

08.06.2006 18:35:02 / hreinirsveinar

Lífið maður!!

Þegar að sólin sest á kvöldin, þá dimmir. Litlu börnin verða hrædd og leita í umhyggju og ást frá þeim fullorðnu. Merkilegt.

Mikið hefur drifið á daga okkar sveinanna undan farið. Við höfum chillað helvíti mikið saman og farið í bíó, horft á spólu og sniffað.

Ég verð samt að lýsa ánægju minni á NFS. Þetta er fucking snilld

Grímur, Atli, Boði og Jonni.

Sjáumst í kvöld strákar með öl í hönd.

kv. Boði


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.06.2006 15:25:33 / hreinirsveinar

Nærbuxnasniffarar

Týndar Nærbuxur

Ég lýsi eftir týndum nærbuxum sem mig grunar að hafi verið rændar í nótt.
En ég óttast að nærbuxnasniffarar í nágrenninu hafi rænt þeim, en þið sem vitið e-ð um þetta mál eru vinsamlegast beðin um að hafa samband við lögregluna á Seltjarnarnesi í símanúmerið 8670179.

Kv. Sæmi Rokk


» 1 hafa sagt sína skoðun

02.06.2006 00:30:04 / hreinirsveinar

HÁLFVITAR!

Skúli vodkagiver, Jonni gyðingur, Grímur "vinnualki" og Ási ef að þessar færslur eru komnar út í eitthvað svona þá getiði átt ykkur helvitis fíflin ykkar! Ég er mjög ósáttur með þetta!


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.05.2006 00:43:59 / hreinirsveinar

Nostradamus

Eyþór Arnalds býður gott kvöld

Já ekki er hægt að segja annað en að sumarið sé komið. Veðrið alveg leikur við okkur þessa daganna og ekkert skemmtilegra en fara í sund og láta sólina gæla við sig svona loksins þegar að prófin eru búin.
En einkunnaafhendingin er einmitt á morgun og lítur þetta bara nokkuð vel út!

Margt er á döfinni hjá okkur sveinunum í sumar, ekki bara hórdómur, dóp og fyllerí.

Heldur líka erum við að fara að vinna að verkefni, sem mun skýrast betur síðar en það er mjög forvitnilegt á eftir að vekja umtalsverða athygli, það er alveg á hreinu!

Helgin var mjög skemmtileg, ekkert hægt að bæta neinu við það, á sunnudaginn fórum við á DaVinci Code. Þessi mynd var nú bara nokkuð góð, greinilegt að hann DaVinci hefur verið meira en bara útlitið, alveg skuggalega gáfaður!
En hann Atli Björn ætlar að koma með kvikmyndagagnrýni um myndina innan tíðar.

En stutt var það í kvöld, vegna veðurs.

Konan hans Eyþórs býður Góða Nótt!

Kv Lordi


» 1 hafa sagt sína skoðun

12.05.2006 16:59:26 / hreinirsveinar

Tómas Bergsson


Þetta er að hafast sagði maðurinn einu sinni, og ef það á ekki við núna þá er Ási ekki frændi Jonna. Af því að ekkert merkilegt hefur gerst síðastliðinn hálfan mánuðinn sökum innipúkisma og lærisma hef ég svosem ekki frá mörgu að segja, því frekar ætla ég að láta hugann reika og velta fyrir mér heiminum, lífinu og annarri vitleysu.


Frá og með deginum í dag og til og með sunnudeginum 21. maí, mun áfengisneysla íslenskra unglinga aukast um 307%, 1104 ungmenni á aldrinum 15-20 ára eiga eftir að deyja áfengisdauða, og 56 ungmenni munu stunda kynlíf sem þau eiga ekki eftir að muna eftir! Könnunin var gerð af Gallup (skekkjumörk 0%).


Af því ég er nú að blogga þá vil ég nýta tækifærið og votta fjölskyldum fórnarlamba flóðbylgjunnar í Grafarvogi samúð mína alla. Nú gætu einhverjir komið af fjöllum og spurt sig “ha? Bíddu var flóðbylgjan ekki í Asíu” Neii krakkar mínir það varð önnur flóðbylgja og orsakavaldur hennar var ekki Móðir Náttúra, það var okkar dáði vinur Boði Logason, já þið heyrðuð rétt Boði Logason! Forsaga málsins er sú að hann Boði var beðinn um að koma í myndatöku fyrir Lokaballs plaggatið og eins og allir sem hafa séð plaggatið er Boði að hoppa ofan í sundlaug (grafarvogslaugina) og gera bombu! Stíliserar plaggatsins höfðu ekki áttað sig á hættunni því jú Boði hefur alltaf þótt grannur drengur og tilturlega vel á sig kominn líkamlega. En á síðustu mánuðum hefur líkami Boða tekið stakkaskiptum, kílóin hlaðist upp, rassinn stækkað um 5 fermetra og eðlismassi hans hækkað úr 1,5 í 15,0! Og þegar þetta ferlíki lenti á botni Grafarvogslaugar var ekki sökum að spyrja! Ekki nóg með það að hann hafi tæmt laugina heldur var höggið svo gífurlegt að allar vatnsleiðslur í Grafarvogi sprungu með þeim afleiðingum að flóðbylgja reið yfir “fjallahéraðið” og yfir 30 manns létust, þar á meðal Friðbert Angantýrsson formaður matarklúbbsins Hnísir. Þar sem ég held að nú sé ég búinn að tæma viskubrunn minn, er máli mínu nú formlega lokið.


Fyrir hönd minningarsamtakanna um fórnarlömb flóðbylgjunnar í Grafarvogi.


Skúli Jón Friðbert Friðgeirsson Angantýrsson


» 4 hafa sagt sína skoðun

09.05.2006 02:51:42 / hreinirsveinar

Gagnrýni

 

Jaa hérna ég er orðlaus! Ég fékk ábendingu um ansi skemmtilega skoðunakönnun á djarfar.tk sem er reyndar ekkert svo skemmtileg þegar skoðaðað eru niðurstöður úr könnuninni. Ég vil samt meina að þetta snúist um hvaða bloggfélög af þessum sem eru nefnd skoða oftast þessa síðu. En það er bara okkar kennig þar sem við erum svekktir með úrslitin.

En svo skoðaði ég síðuna betur og komst að einu ennþá sorglegara. Í gestabókinni stóð:

08.05.2006 00:52:08     »    Einn af landinu... » http://

sælar... kom í partý til ykkar einu sinni;)
jæja dömur... uss uss uss.. þið eruð svo rosalegar.. kom einhvern tíman í partý til ykkar og það var bara mergjað sko.. en halló þessi skoðunar könnun... að hafa þessa hreina sveina þarna er notla alveg vangefið... Þetta eru mestu lúðar sem ég hef ekki einu sinni á ævi minni hit... það var nóg að vita að þeirr væru í kvenmönnum á við www.blog.c.is/notabene...
og þorgerður heitir hún... ójjj hún þurfi að flytja til rvk því hún var bara frík þar sem hún átti heima... óóójjjj en jæja þið eruð bara flottar og ég vildi bara drulla yfir þessa stelpu... blessaðar... og þetta var geggjað partý...

1. lagi - þá er þetta ansi fyndið fyrir okkur sem vita í hvaða atvik strákurinn er að vísa.
2. lagi - þá er það ansi slæmt að einhver finnist svo slappt að hafa okkur í skoðanakönnun á meðal 4 bloggfélega að hann telji sig þurfa að skrifa um það.
3. lagi - þá hef ég það á tilfinningunni að gaurinn sem skrifar þetta sé alls ekkert svo svalur sjálfur. "Einn af landinu.....kom í partý til ykkar" Þessi er alveg með það á hreinu hvernig hann á ekki að vera lúði!
4. lagi - vona ég að "einn af landinu" haldi ekki að við höfum allir verið í þessari umræddu stelpu sem hann kallar frík. Ég held að hann sé sjálfur frík
5. lagi - þá er einn meðlimurinn í þessu félagi okkar beðinn um að vera ekki ofurölvi á fleiri böllum svo við höldum nú allavega orðsporinu fyrir einhverjum sveitalúðum.
6..lagi - þá finnst mér "einn af landinu" ansi mikið fífl.

Já ég er brjálaður!

P:S Þraut: Hvaða stelpa sker sig úr gellu vikunnar hjá okkur ?

Kveðja

Svona er leikurinn


» 4 hafa sagt sína skoðun

05.05.2006 23:32:03 / hreinirsveinar

Spjótkast

Góða kvöldið!

Í dag átti ég fullt af skemmtilegum samtölum, en verð að segja að það var eitt sem stóð uppúr.
Ég og Jonni vorum á leiðinni heim úr skólanum og hann var á kagganum sem mun
umturnast í sumar að hans sögn. En þess má geta að hann Jonni varð rafmagnslaus
fyrir u.þ.b 6 klst og 15 min, ekki hægt annað en að hlægja af því. HAHA.

Þegar að við vorum komnir fyrir utan hjá mér, þá stöðvaði Jonni bílinn og við
byrjuðum bara svona að spjalla um hitt og þetta, þó aðallega hvað við ætluðum að
gera eftir prófin, gengi dollarans, dönskuprófið, bílinn hans Jonna og sitthvað fleira.
En aðalumræðuefnið var að við vorum báðir algerlega sammála því að þegar að við
sjáum e-ð fólk þá sjáum við fyrir okkur dýr, soldið skrýið og stundum frekar
óþægilega hugsun en samt skemmtileg.

En við strákarnir eigum okkar tegund af dýri:

Boði: Hann er selur
Skúli: Hann er gírafi
Jonni: Hann er flóðhestur
Atli: Hann er pokarotta
Grímur: Hann er dýrið í Ice Age

Annars var það ekki fleira í kvöld, og ég vil skora hann Atla Björn á að taka eitt
blogg um fyrimynd eða hetju man það ekki alveg en eins og flestir krakkar fæddir 1988 muna svo allvel, þá áttum við að
skrifa ritgerð um fyrirmynd eða hetju í íslensku í samræmduprófunum í 10. bekk.
Og yrði það reglulega skemmtilegt ef hann Atli Björn myndi endurskrifa hana fyrir okkur J

Kv. Grímur


» 4 hafa sagt sína skoðun

04.05.2006 23:38:48 / hreinirsveinar

Vandamál

Ég vil vekja athygli á því að samkvæmt skoðunnarkönnunni hérna til hliðar þá eru lesendur síðunnar eftirfarandi:

Karlar 29 %

Konur 71 %

... samt getum við ekki misst sveindóminn?

HVAÐ ER AÐ???

kveðja. Caleb í Desperate Housewifes


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.05.2006 20:01:30 / hreinirsveinar

Peysufatadagurinn

Þetta er bloggari ársins á hreinum. Sjáumst eftir próf fullari en Lalli Johns!

kv. Skúli, Ási (extra fullur eftir próf) og Boði


» 4 hafa sagt sína skoðun

03.05.2006 17:33:19 / hreinirsveinar

Farsímar og morfínáhrif


Veggfóður og  önnur pása frá lærdómnum

Það er eitthvað sem gerist þegar að maður byrjar í prófum. Ég veit ekki
nákvæmlega hvað það er, en mér finnst fólk verða skrýtið og allir byrja að haga sér
öðruvísi, fólk fer í felur, byrjar að búa til allskonar tölvuvírusa og fer að senda dónaleg
sms en ég er sem betur fer ekki í þessum pakka, en það er samt annað sem hrjáir
mig.
Ég er farinn að halda að ég sé leðurbleka, það finnst mér dálítið undarlegt og hef
svolitlar áhyggjur af því.
En vonandi er þetta bara eitthvað tímabundið og verður farið þegar að prófin klárast.

En úr þessari hugsun yfir í aðrar hugsanir.

Ég sagði í gær að ég ætlaði að segja ykkur frá fólki í skápum.
Skápar eru soldið skemmtilegir ef maður hugsar aðeins nánar út í það. Við vitum það
auðvitað að þeir eru mjög lokaðir, enda eiga þeir að vera það, en alltaf verður maður
ánægður þegar að maður opnar þá nema þegar að fötin detta út úr þeim.
Ég sagðist ætla að segja ykkur frá fólki í skápum, það vildi svo skemmtilega til um
daginn að ég var bara e-ð heima, bara svona ráfa um, kíkja útum gluggan annaðslagið
og e-ð bara svona að stússast.

Svo segi ég við mig sjálfan, “nú fer ég út að skokka”. Ég fer fram í fatahengi til þess
að ná í hlaupaskóna, opna þar fataskápin og viti menn þá stendur vinur minn þar inni!
Ég ætlaði ekki að trúa þessu fyrst en svo varð ég að trúa því, því að hann einfaldlega
stóð í skápnum mínum
Þetta var skrýtið en þetta telst sem lífsreynsla!

Önnur hugsun:

Þegar að ég sit hérna og rita þessi orð. Þá hrynja yfir mig minningar frá því þegar að
við strákarnir vorum í golfi fyrir svona 2-5 árum. Nánar tiltekið í Nesklúbbnum.
Þó að ég sé nú nánast hættur í golfinu og hafi aldrei þótt neitt sérstakur eða
einfaldlega bara lélegur þá sakna ég þess að fara í einn texas scramble og rabba
svona um það helsta sem er að gerast þá, á þeim tíma(damals)
Strákar, kannski að við tökum einn hring í sumar, hvernig líst ykkur á það?
En það er eitt atvik við 9. holu sem ég mun seint  og líklegast aldrei gleyma, en frá því
mun ég ekki segja ykkur því að það er lögreglumál einsog Bárður Einarsson notar
oftar en ekki.

Það er ekkert fleira í bili, nema það að það er gaman að sjá að eftir að þessi nýji staðfestingarkóði kom til sögunnar, þá hættir fólk bara ekki að setja sínar skoðanir inn.

Gott framtak hjá blog.centralsmönnum. Klappi Klapp
 



Með leðurblökukveðju,

Grímur Björn


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 14
Leitarbox